30 Mars 2010 12:00

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Hjallabraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í suðurátt, við Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 54 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 81.

Mælingarnar á föstudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Hjallabraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hjallabraut en þá óku hlutfallslega miklu færri, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 34%.