21 September 2010 12:00

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Hjallabraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í norðurátt, við Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 78 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en tíundi hluti ökumanna, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á Hjallabraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.