12 Apríl 2011 12:00

Brot 21 ökumanns var myndað á Hjallabraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í suðurátt, gegnt Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið lægra, eða 13-37%.