13 Mars 2012 12:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Hjallabraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í suðurátt, við Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Hjallabraut er liður í umferðareftirliti hennar við skóla á höfuðborgarsvæðinu. Við fyrri hraðamælingar lögreglunnar á þessum stað hefur brotahlutfallið verið 34-40% og því má segja að ástandið sé óbreytt.