10 Mars 2015 15:13

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Hjallabraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í suðurátt, á móts við Hjallaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 39 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hjallabraut, en á meðan henni stóð var snjóþekja á akbrautinni, er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.