8 Mars 2016 14:17

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Hjallabraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í suðurátt, á móts við Hjallaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 33 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hjallabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.