30 Maí 2012 12:00

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Hjarðarhaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjarðarhaga í austurátt, við Tómasarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.