6 Desember 2012 12:00

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Hjarðarhaga í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjarðarhaga í austurátt, á milli Dunhaga og Tómasarhaga. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 48 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Hjarðarhaga er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.