27 Maí 2014 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Hjarðarhaga í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjarðarhaga í austurátt, við Tómasarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Hjarðarhaga er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.