8 Október 2014 12:00

Brot 21 ökumanns var myndað á Hjarðarhaga í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjarðarhaga í vesturátt, við Tómasarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 43 ökutæki þessa akstursleið og því ók um helmingur ökumanna, eða 49%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56. 

Vöktun lögreglunnar á Hjarðarhaga er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.