28 Maí 2015 16:44

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Hjarðarhaga í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjarðarhaga í austurátt, við Tómasarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Hjarðarhaga er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.