26 Maí 2009 12:00

Fimmtán voru staðnir að hraðakstri á Hjarðarhaga í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 15 ökumanna mynduð á Hjarðarhaga en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, að Tómasarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 35 ökutæki þessa akstursleið og því óku 43% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tveir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hjarðarhaga og þá óku 42% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna (38 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var rúmlega 44 km/klst.