14 Apríl 2009 12:00

Þrír voru staðnir að hraðakstri á Hlíðardalsvegi í Kópavogi í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 3 ökumanna mynduð á Hlíðardalsvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, að Jöklalind. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því óku 12,5 % ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hlíðardalsvegi og þá ók enginn of hratt eða yfir afskiptahraða. Þá var sömuleiðis lítil umferð um götuna.