14 Desember 2016 12:02

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í suðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fór 621 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.