22 Janúar 2018 10:51

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í suðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, fyrir hádegi, fóru 668 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól, snjór og hálkuþekja var á meðan hraðamælingunni stóð.