7 Nóvember 2019 10:07

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í suðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 782 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.