4 Júní 2020 09:10

Brot 82 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í norðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 727 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.