5 Ágúst 2020 09:04

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í norðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 498 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.