28 Desember 2021 15:42

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í norðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 529 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.