21 Júlí 2015 15:17

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í suðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, fyrir hádegi, fóru 552 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.