11 Nóvember 2015 14:29

Brot 63 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í norðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, fyrir hádegi, fóru 446 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Níu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 89.

Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.