30 September 2009 12:00

Brot 135 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í norðurátt, gegnt Árbæjarsafni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 663 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sextán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 96.