3 Mars 2020 16:09

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Hofsvallagötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hofsvallagötu í suðurátt, við Reynimel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 211 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 51 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Hofsvallagötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.