12 Maí 2022 10:20

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Hofsvallagötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hofsvallagötu í suðurátt, að Einimel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 161 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.

Vöktun lögreglunnar á Hofsvallagötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.