27 Maí 2009 12:00

Sex voru staðnir að hraðakstri á Hofsvallagötu í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 6 ökumanna mynduð á Hofsvallagötu en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, að Einimel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 178 ökutæki þessa akstursleið og því óku 3% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var  rúmlega 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hofsvallagötu og þá óku 1% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var aðeins minni umferð um götuna (139 ökutæki). Samkvæmt þessu virðast þeir sem aka um Hofsvallagötu yfirleitt vera til fyrirmyndar.