13 Október 2009 12:00

Tæplega fimmtíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í grófustu brotunum var ekið á 40-50 km hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Mikill meirihluti hinna brotlegu voru karlar en einn þeirra reyndist jafnframt ölvaður. Karlarnir eru flestir á þrítugs- og fertugsaldri en nokkrir eru undir tvítugu og tveir eru á áttræðisaldri. Sex konur voru stöðvaðar í þessu hraðaeftirliti en þær eru á aldrinum 20-40 ára.