19 Janúar 2010 12:00

Fjörutíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í allra grófustu brotunum var ekið á 35-45 km hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Mikill meirihluti hinna brotlegu voru karlar. Þeir eru flestir á þrítugs- og fertugsaldri en nokkrir eru undir tvítugu. Tíu konur voru stöðvaðar í þessu hraðaeftirliti en þær eru á aldrinum 18-36 ára.