1 September 2022 09:15

Brot 29 ökumanna voru mynduð á Holtsvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Holtsveg í norðurátt, að Lynggötu. Á einni og hálfri klukkustund, fyrir hádegi, fóru 134 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Holtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.