27 Maí 2020 16:16

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Holtsvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Holtsveg í norðurátt, við Lynggötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 73 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar á Holtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.