17 Mars 2009 12:00

Sextán ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Hraunbrún í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 16 ökumanna mynduð á Hraunbrún en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, að Tunguvegi. Á fimmtíu mínútum, fyrir hádegi, fóru 35 ökutæki þessa akstursleið og því óku 46% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði, hraðahindranir og gangbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 53. 

Fyrir nákvæmlega ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hraunbrún en þá óku hlutfallslega fleiri, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Niðurstaðan nú er því ögn skárri en samt mikið áhyggjuefni. Það er sömuleiðis breyting til batnaðar að meðalhraði hinna brotlegu er lægri núna en í fyrra. Við hraðamælinguna í mars á síðasta ári var meðalhraðinn 48 km/klst en var 45 í gær, líkt og að framan greinir.