2 September 2009 12:00

Nítján voru staðnir að hraðakstri á Hraunbrún í Hafnarfirði í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru brot 19 ökumanna mynduð á Hraunbrún en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 29 ökutæki þessa akstursleið og því óku 66% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Hraunbrún er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu en frá götunni liggur merkt gönguleið að Víðistaðaskóla.