15 Mars 2010 12:00

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Hraunbrún í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbrún í suðurátt, að Tunguvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Hraunbrún var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hraunbrún en þá óku hlutfallslega færri, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 55%.