21 September 2010 12:00

Brot 31 ökumanns var myndað á Hraunbrún í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbrún í suðurátt, skammt frá Hrauntungu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 75 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Hraunbrún, en í nágrenninu er Víðistaðaskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.