18 Apríl 2011 12:00

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Hraunbrún í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbrún í suðurátt, að Tunguvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 58%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 46-59%.