20 Mars 2012 12:00

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Hraunbrún í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbrún í suðurátt, að Tunguvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Hraunbrún er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.