17 Mars 2015 09:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Hraunbrún í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbrún í austurátt, á móts við Hraunbrún 30. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 35 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Hraunbrún er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.