17 Mars 2008 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Hraunbrún í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbrún í suðurátt, að Tunguvegi. Á tæpri einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 20 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var  48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.  Einn ökufantur skar sig úr á Hraunbrún í dag en ökutæki hans mældist á 82.

Eftirlit lögreglunnar á Hraunbrún er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Hraunbrún var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.