15 Nóvember 2007 12:00

Brot 230 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á þriðjudag og miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á liðlega átján klukkustundum fóru 10.275 ökutæki þessa akstursleið og því ók lítill hluti ökumanna, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og níu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 106.

Þess má geta að við vöktun á sömu gatnamótum síðsumars óku 4% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Sé tekið mið af nýjustu upplýsingum virðist því horfa til betri vegar á þessum stað hvað umferðarhraða varðar.