7 Ágúst 2008 12:00

Brot 431 ökumanns var myndað á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á þriðjudag og miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á rúmlega tuttugu og þremur klukkustundum fóru 11.662 ökutæki þessa akstursleið og því óku 3,7% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Áttatíu óku á 80 km hraða eða meira, þar af fjórir á 100 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 147.