15 September 2008 12:00

Brot 367 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á fimmtudag og föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á liðlega tuttugu og tveimur klukkustundum fóru 14.563 ökutæki þessa akstursleið og því óku tæplega 3% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjötíu og tveir óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 104.