14 Nóvember 2008 12:00

Brot 431 ökumanns var myndað á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á miðvikudag og fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á tæplega tuttugu og fimm klukkustundum fóru 15.533 ökutæki þessa akstursleið og því óku tæplega 3% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Nítíu og einn ók á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 107.

Niðurstaðan er svipuð og við síðustu hraðamælingu á þessum stað. Þá óku hlutfallslega jafn margir of hratt eða yfir afskiptahraða og meðalhraði hinna brotlegu var sömuleiðis ámóta, eða rúmlega 75 km/klst.