23 Febrúar 2009 12:00

Brot 396 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á miðvikudag og fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á tuttugu og fjórum klukkustundum fóru 14.955 ökutæki þessa akstursleið og því óku tæplega 3% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjötíu og einn ók á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 95.

Niðurstaðan er svipuð og við síðustu hraðamælingu á þessum stað. Þá óku hlutfallslega jafn margir of hratt eða yfir afskiptahraða og meðalhraði hinna brotlegu var sömuleiðis ámóta.

Meðalhraði brotlegra ökumanna eftir tímabili sólarhringsins.

Fjöldi brota eftir tímabili sólarhringsins.