26 Mars 2018 09:55

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í suðurátt, á móts við Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skúrir og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.