24 Janúar 2022 09:43

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í suðurátt, á móts við Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 78 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.