2 Mars 2022 14:36

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í norðurátt, á móts við Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 97 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.