2 Apríl 2009 12:00

Sextíu og sex ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Hringbraut í Hafnarfirði á þriðjudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á þriðjudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 66 ökumanna mynduð á Hringbraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, gegnt Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 127 ökutæki þessa akstursleið og því óku 52% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði, biðstöð almenningsvagna og fjölfarin gönguleið frá fyrrnefndum skóla. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hringbraut og þá var niðurstaðan alveg jafn slæm. Þá óku sömuleiðis 52% of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu er einnig sá sami á milli ára. Ljóst er að sveitarfélagið þarf að huga að úrbótum á Hringbraut.