31 Mars 2010 12:00

Brot 64 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í suðurátt, gegnt Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 119 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Hringbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Hringbraut en þá óku hlutfallslega ámóta margir, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan sú sama, eða 52%.