28 Apríl 2011 12:00

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í suðurátt, gegnt Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 103 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 52-54% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 42-45 km/klst.