14 Október 2013 12:00

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á móts við Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 92 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.