17 Mars 2016 17:00

Brot 41 ökumanns var myndað á Hringbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í suðurátt, á móts við Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.